Ráðstöfunartekjur aukast um allt að 9% á næsta ári 29. nóvember 2006 18:30
Ráðstöfunartekjur fjölskyldu, með meðaltekjur og tvö börn, munu aukast um allt að níu prósent á næsta ári, vegna breytinga á skattkerfinu og samningsbundinna launahækkana. Tekjuskattur mun lækka, persónuafsláttur hækka og barnabætur verða greiddar með börnum allt til 18 ára aldurs. Ríkisstjórnin lýsti því yfir í júní að hún myndi grípa til ráðstafana til að koma í veg fyrir uppsögn kjarasamninga nú í haust, eins og stefndi í vegna meiri verðbólgu en forsendur gildandi samninga höfðu gert ráð fyrir. Frumvarp sem byggir á þessari yfirlýsingu verður væntanlega að lögum í næstu viku. Samkvæmt því lækkar tekjuskattur ríkisins um eitt prósentustig og verður 22,75 prósent. Þá verða greiddar barnabætur með börnum til 18 ára aldurs í stað 16 ára áður og persónuafsláttur verður hækkaður, þannig að skattleysismörk hækka úr 79 þúsundum í 90 þúsund krónur á mánuði. Að auki verða gerðar breytingar á vaxtabótakerfinu, sem ekki verður farið út í nánar hér. En skoðum hvernig þessar breytingar koma til með að virka fyrir tvær sams konar fjölskyldur með mismunandi tekjur, því enn skerðast bætur eftir tekjum. Í báðum dæmunum er gert ráð fyrir samningsbundnum launahækkunum milli ára. Tökum fyrst fjölskyldu með tiltölulega lágar heildartekjur, eða 4,8 milljónir króna á ári, með tvö börn, annað 5 ára og hitt 16 ára. Hér hefur verið reiknað með samningsbundnum launahækkunum milli ára, eins og áður sagði. Þrátt fyrir lægri skattprósentu hækkar skatturinn í þessu dæmi um 1,2 prósent, en fyrir þessa fjölskyldu hækka barnabæturnar hins vegar um 29,8 prósent og ráðstöfunartekjurnar um 8,9 prósent. Þessi fjölskylda mun því hafa rúmlega 314 þúsund krónum meira á milli handanna á næsta ári en í ár. Tökum þá dæmi af tekjuhærri fjölskyldu, með 9,6 milljónir í heildartekjur í ár. Skattgreiðslur hennar hækka um 2,3 prósent og barnabæturnar um 20 prósent, sem í þessu dæmi eru tæpar tíu þúsund krónur á ári. En vegna samningsbundinna launahækkana sem bætast ofan á, aukast ráðstöfunartekjur þessarar fjölskyldu um rúmar 513 þúsund krónur á næsta ári. Í þessum dæmum var tekið tillit til barnabótaauka sem greiddur er með börnum yngri en sjö ára. Útreikningar í þessari frétt eru úr samantekt sem Alþýðusambandið gerði fyrir fréttastofuna.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira