Innlent

Hundvotir hvuttar á Laugaveginum

Á annað hundrað hundaeigendur með enn fleiri hunda gengu niður Laugaveginn í Reykjavík í dag. Þetta var í fjórða skipti sem hundaeigendur efna til göngu sem þessarar niður annars forboðinn Laugaveginn.

Þeir voru litlir og stórir, loðnir og snöggir hundarnir sem gengu stoltir með eigendum sínum niður Laugaveginn í Reykjavík í dag. Hildur Ómarsdóttir, sem mætti með hundinn sinn Snoopy, sagði að með göngunni væru hundaeigendur að gera sér glaðan dag, en jafnframt í bland að mótmæla því að geta ekki gengið með vini sína þangað sem þeir vildu fara. Hún sagðist ekki telja að hundarnir myndu hræða fólk, jafnvel þótt margir væru hræddir við hunda. Gangan hefði verið vandlega auglýst og svo hefðu flestir hundaeigendur góða stjórn á hundum sínum.

Þrátt fyrir rigninguna fór gangan vel fram og hundarnir virtust bara ánægðir með háværan lúðrablásturinn í brjósti göngunnar. Eins og sjá má á myndunum voru margir hundanna vel búnir til göngu í votviðri og klæddust eftir nýjustu tísku í öllum regnbogans litum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×