Innlent

Evrópskt peningasvindl teygir anga sína til Íslands

Tveir Íslendingar hafa lent í umfangsmikilli fjársvikastarfsemi á internetinu sem teygir anga sína um alla Evrópu. Þeir sem vísvitandi taka þátt í svikunum eiga yfir höfði sér fangelsi og fjársektir.

Svikin fara þannig fram að fólk fær tölvupóst þar sem því er boðin vinna við sölu- og markaðsstörf í nafni frægra fyrirtækja. Þegar fólk hefur samþykkt þetta er það beðið um bankaupplýsingar og peningar lagðir inn á reikning þess. Tveir Íslendingar lentu í neti svikaranna og fengu ýmist tugi eða hundruð þúsunda inn á bankareikning sinn.

Jón B Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, segir að Íslendingarnir hafi talið sig vera að byrja að vinna við sölu- og markaðsstörf. Fjármunir hafi verið lagðir inn á bankareikinga þeirra og þeir beðnir um að senda þá áfram til nokkurra einstaklinga víða um Evrópu.

Fyrirmæli svikaranna voru að senda peningana sem almenna peningasendingu á nafn í tiltekinni bankastofnun en ekki á reikningsnúmer. Þannig geta svikararnir nálgast peningana án þess að hægt sé að rekja þá til þeirra seinna meir og slóðin hverfur. Þetta er yfirleitt fé sem svikið hefur verið út með fölsuðum pappírum í upphafi. Þeir sem láta gabbast í þessa millimennsku fá svo á sig kröfu frá þeim sem svikinn var.

Jón segir að Íslendingarnir séu búnir að fá kröfu um endurgreiðslu þessara peninga, vegna þess að þeir hafi upphaflega verið fengnir með einhvers konar auðgunarbrotum. Allt bendi hins vegar til að Íslendingarnir tveir hafi verið saklausir leiksoppar, en ekki er víst að þeir þurfi að lokum að greiða féð sem það millifærði.

"Það er ekki alveg augljóst að fólkið þurfi að greiða þessa peninga til baka. En það kann að koma til málareksturs á hendur þeim," segir Jón. Flest bendi aftur á móti til þess að fólkið hafi gert þetta í góðri trú og sé sjálft þolendur þessara brota.

Svikahrapparnir leyfðu þeim sem þeir blektu að halda eftir 5 prósetnum af upphæðinni sem það millifærði í þóknun. Haldi fólk leiknum áfram eftir að það grunar að um svik sé að ræða, getur það lent illa í því. Jón bendir á að það liggi fangelsisrefsing við peningaþvætti og hvers konar hlutdeild í slíkum brotum sé refsiverð og geti kallað á bótaskyldu.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×