Innlent

Vegagerðin bauð út þrjú verk

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, tilkynnti í síðustu viku að myndast hefði svigrúm til að hefja samgöngubætur á ný en í júní voru öll útboð vegna Vegagerðar stöðvuð. Í gær var boðinn út Veigastaðarvegur, sem er milli Hringvegar og Eyjafjarðarbrautar eystri. Einnig var óskað eftir tilboðum í nýbyggingu tæplega átta kílómetra kafla Hringvegar milli Ármótasels og Skjöldólfsstaða á Jökuldal og í Uxahryggjarveg frá Tröllhálsi að Kaldadalsvegi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×