Enginn handtekinn fyrr en tölvurnar hafa verið rannsakaðar 19. september 2006 15:53
Lögreglumenn í Reykjavík, Kópavogi, á Selfossi og Ísafirði gerðu í morgun húsleitir á sama tíma vegna gruns um að niðurhal á barnaklámi af netinu. Aðgerðirnar voru skipulagðar eftir vísbendingu frá Interpol. Enginn verður handtekinn fyrr en tölvurnar hafa verið rannsakaðar af tæknideildum á hverjum stað fyrir sig. Það var rúmlega tíu í morgun sem lögregla á fjórum stöðum á landinu réðist inn í hús og gerði upptækar tölvur eftir vísbendingar frá alþjóðalögreglunni Interpol um að þessar tölvur hefðu verið notaðar til að hlaða niður barnaklámi af internetinu. Lögreglan á Selfossi réðst inn í eitt hús í Árnessýslu, sömuleiðis rannsökuðu lögreglan í Kópavogi og á Ísafirði hvor sitt húsið. Tvö hús voru rannsökuð í Reykjavík en á öllum stöðunum var hald lagt á tölvur, fleiri en eina á hverjum stað. Tæknideild lögreglunnar á hverjum stað tekur nú til við að rannsaka tölvurnar en enginn verður handtekinn vegna málsins fyrr en komið er í ljós hvort og hversu mikið af ólöglegu efni finnst á tölvunum. Einn er grunaður í Árnessýslu, einn í Kópavogi og fleiri en tveir í Reykjavík. Ekki fannst annað efni í húsunum sem tengdist barnaklámi. Hámarksrefsing við vörslu barnakláms er tveggja ára fangelsi.
Mest lesið Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Innlent „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Innlent Kveður eftir ævilangt starf Innlent Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Innlent Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Erlent Mogginn afþakkar framlag Dags B. Innlent Sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Erlent „Erum við að fara að deyja?“ Innlent Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Innlent Fleiri fréttir Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Kveður eftir ævilangt starf Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Sérsveitaraðgerð á Akureyri Fólskuleg árás og óvinsæl sundtíska Furðulegum fiskum, hetjum hafsins og brunabangsa bregður fyrir um helgina Guðlaug skipuð skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Vill gera stjórnvöldum heimilt að synja beiðni um nafnbreytingu Endurbætur kostuðu 415 milljónir: Veggfóður fyrir nítján milljónir og ljós fyrir ellefu FÍA hvetur flugmenn til að hlaupa undir bagga og styðja við Icelandair Mogginn afþakkar framlag Dags B. Sendi frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Ætlar að synda niður Lagarfljót fyrstur manna Skiptiskjól á þremur stöðum í Reykjavík Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Rafbyssum aldrei beitt oftar Munu auglýsa eftir nýjum bæjarstjóra Réttmæt reiði vegna ofurkjara kjörinna fulltrúa og embættismanna „Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn“ Tók fjögur ár að slá föstu að samræði við barn væri nauðgun Kærður fyrir að löðrunga hundinn sinn Óttast fordæmið sem ákvörðun ráðherra setur um Baldur Botnlaus gróðafýsn, viðsnúningur í nauðgunarmáli og óánægja vegna Baldurs „Erum við að fara að deyja?“ Saka stjórnvöld um að tefja endurreisn Grindavíkur Óvenjuleg fley undan ströndum Reykjavíkur Með um 2,8 milljónir í laun sem bæjarstjóri Kjarnorkuknúinn kafbátur í þjónustuheimsókn Sjá meira