Ríkið æsir til einkavæðingar í heilbrigðiskerfinu 18. september 2006 20:19
Bæklunarlæknar eru ekki bjartsýnir á að fundir með samninganefnd heilbrigðisráðuneytisins skili ásættanlegum árangri og fleiri sérgreinalæknar líta einnig til fordæmis hjartalækna sem sögðu sig af samningi við Tryggingastofnun í vor. Formaður Læknafélags Íslands segir að með því að takmarka þjónustuna sé ríkið að æsa til einkavæðingar í heilbrigðiskerfinu. Fulltrúar bæklunarlækna funduðu með Siv Friðleifsdóttur, heilbrigðisráðherra, á föstudaginn og hitta fyrir samninganefnd heilbrigðisráðuneytisins á fimmtudaginn kemur. Sveinbjörn Brandsson, formaður samninganefndar bæklunarlækna er ekki bjartsýnn á árangur af komandi fundum. Þetta kemur ekki á óvart þar sem í heilbrigðisráðuneytinu heyrast þau svör að ekkert sé að semja um, samningurinn við Tryggingastofnun sé enn í fullu gildi og verði svo út mars 2008. Sveinbjörn er hins vegar ekki sammála því að ekkert sé að semja um. Bæklunarlæknar segi biðtíma sjúklinga óásættanlega langan og jafnvel þó að læknar standi á bremsunni og takmarki mjög heimsóknir sjúklinga þá klárist kvótinn og margir læknar þurfi nánast að loka stofum sínum í nóvember og desember vegna þess að þá sé kvóti Tryggingastofnunar búinn. Sveinbjörn segir það verða þrautalendingu ef ekki finnst önnur lausn að bæklunarlæknar líti til fordæmis hjartalækna sem sögðu sig af samningnum við Tryggingastofnun í vor. Fleiri sérgreinalæknar eru langþreyttir á samningum Tryggingastofnunar um kvóta sem klárast oft áður en árið er á enda. Mikið kurr var til dæmis meðal augnlækna í vor þar sem hratt gekk á þær fjárheimildir sem læknunum eru úthlutaðar hjá Tryggingastofnun. Vildu margir segja sig af samningi við Tryggingastofnun líkt og hjartalæknar gerðu í vor en forysta félags augnlækna hvatti til þolinmæði og aukins aðhalds, sem í hugum margra lækna kristallast í lengri biðtímum og lélegri þjónustu við sjúklinga. Einnig hafa barnageðlæknar átt í bréfaskiptum við Tryggingastofnun vegna takmarkaðra fjárheimilda. Sigurbjörn Sveinsson, formaður Læknafélags Íslands, segir takmarkandi kvóta Tryggingastofnunar vera letjandi fyrir lækna að vera á samningi hjá Tryggingastofnun. Með þröngum fjárheimildum sé því verið að æsa til einkavæðingar með því að langþreyttir læknar gefist upp á samstarfi við ríkið.
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Sjá meira