Innlent

Málþing hjá Mannréttindaskrifstofu Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands og Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, standa að málþingi sem ber yfirskriftina Trúfrelsi og lífsskoðanafélög. Lífsskoðanafélög eru félög sem fjalla um siðferði og lífsskoðanir og sjá meðlimum fyrir félagslegum athöfnum eins og nafngift, fermingu, giftingu og greftrun (dæmi Siðmennt á Íslandi og Human Etisk Forbund í Noregi) en tilgangur málþingsins er að fjalla um jafnræði trúfélaga, skráningu lífsskoðanafélaga og trúfrelsi á Íslandi. Málþingið verður haldið 18. maí næstkomandi, kl. 16:15-18,  Fundurinn fer fram í Kornhlöðunni, Bankastræti 2. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×