Inga Þóra í úrslit þar sem hún keppir við Jónas Örn 12. maí 2006 00:22
Inga Þóra Ingvarsdóttir er komin í úrslit í spurningaþættinum Meistarinn sem sýndur er á Stöð 2. Úrslitaþátturin verður á uppstigningardag, 25. maí en þar mætir Inga Þóra Jónasi Erni Helgasyni. Inga Þóra Ingvarsdóttir, 26 ára sagnfræðingur, hefur tryggt sér sæti í fyrstu úrslitaviðureign Meistarans. Þar mun hún etja kappi við Jónas Örn Helgason, 21 árs gamlan verkfræðinema, um nafnbótina Meistarinn og hvorki meira né minna en 5 milljónir króna í beinhörðum peningum. Inga Þóra lagði Erling Sigurðarson í seinni undanúrslitaviðureigninni sem var vægast sagt spennandi áhorfs. Erlingur leiddi framan af en í síðasta liðnum, þegar forysta hans var orðin 10 stig, 22-12, tók hann þá afdrifaríku ákvörðun að leggja forystu sína að veði fyrir peningaspurningu; sem hann síðan átti ekki svar við. Þar með var forystan komin niður í 5 stig, 17-12. Þegar ein spurning var eftir var staðað 16-13, Erlingi í vil. Inga Þóra gekk þá á lagið, lagði 5 stig undir spurninguna, sem var á þá leið hvaða kryddjurt Vísi-Gísli flutti inn til landsins á 17. öld. Og ekki stóð á svarinu hjá Ingu Þóru: Kúmen. Þar með hafði hún unnið glæstan sigur á hörðum keppinauti sínum. Lokatölur urðu 18-16 Ingu Þóru í vil og þar með er hún komin í úrslit. Það er skemmtileg staðreynd að til úrslita munu keppa tveir af yngstu keppendum Meistarans í ár, Jónas Örn, sem er aðeins 21 árs og Inga Þóra, sem er fimm árum eldri. Og þau eiga meira sameiginlegt; bæði voru þau í MH og bæði kepptu þau fyrir hönd skólans í spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur, með góðum árangri. Það má því líta á þessar lyktir sem vissan sigur fyrir MH. Nánari upplýsingar um Ingu ÞóruInga Þóra er 26 að aldri. Hún er stúdent frá MH, líkt og Jónas Örn og tók BA-próf í safnfræði frá HÍ 2002. Hún er með MA-próf í Propaganda, Persuasion and History frá University of Kent frá 2005. Inga Þóra hefur unnið mörg störf, m.a. á leikskóla, elliheimili, bókasafni, hjá Orkuveitu Reykjavíkur og sem bréfberi hjá Íslandspósti. Inga Þóra hefur mikinn áhuga á bókmenntum og les heims- og afþreyingarbókmenntir jöfnum höndum. Myndlist er henni einnig hugleikin, sem og skriftir, tónlist og kvikmyndir. Sérsviðin segir hún tengjast áhugamálum og menntum - eins og gefur að skilja. Inga Þóra tók þátt í Gettu betur fyrir hönd MH öll sín menntaskólaár. Inga Þóra er eini keppandinn í 4 manna úrslitum sem hefur verið með frá fyrstu umferð. Hún lagði Þorvald Þorvaldsson smið í allra fyrsta þættinum á öðrum degi jóla; í 16 manna úrslitum gerði hún sér lítið fyrir og lagði Friðbjörn Eirík Garðarson lögmann, sem sjálfur hafði lagt af velli Stefán Pálsson í fyrstu umferð og í 8 manna úrslitum lagði hún sem fyrr segir Kristján Guy Burgess. Úrslitaþáttur - Uppstigningardag, 25. maíMeistarinn er alvöru spurningaþáttur, "klassískur spurningaþátt," eins og stjórnandi þáttarins, Logi Bergmann hefur orðað það. Fréttaþulurinn Logi Bergmann er hreint enginn aukvisi þegar kemur að því að stýra spurningaþætti en hann var stjórnandi spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur við góðan orðstír í sjö ár. Meistarinn er öllum opinn. Markmiðið með þættinum var að leiða saman til spennandi einvígis skörpustu menn og konur landsins; jafnt þau sem þegar eru orðin landsmönnum að góðu kunn fyrir frækna framgöngu í spurningakeppnum, sem og aðra sem til stendur að uppgötva, laða fram á sjónvarsviðið. Allir sem náð hafa 20 aldursárum áttu þess kost að taka þátt. Efnt var til inntökuprófs - "Meistaraprófs" - í nóvember á fjórum stöðum á landinu, í Reykjavík, Egilsstöðum, Akureyri og á Ísafirði og var þáttaka með mesta móti. Þeir hlutskörpustu í prófinu munu mæta til leiks í Meistaranum, ásamt nokkrum af nafntogaðri gáfumönnum og spurningahaukum lansins. Meistarinn á sér enga fyrirmyndir, er nýr og fjölbreyttur spurningaþáttur fyrir alla fjölskylduna, sem sameina mun allt það besta sem tíðkast hefur í vinsælum spurningaþáttum. Spennan verður í hávegum höfð og mun ekki einasta reyna á þekkingu keppenda heldur ekki síður kænsku þeirra og heppni. Spurningar eru almenns eðlis, um allt og ekkert, allt frá því að vera níþungar í að vera laufléttar. Reynir því ekki einasta á gáfur keppenda heldur ekki hvað síst á kænsku og heppni. Einn mikilvægasti liðurinn í keppninni er nefnilega sá að keppendur þurfa að velja flokka ýmist handa sér eða mótkeppanda sínum. Keppendur þurfa því að spreyta sig á flokkum sem mótkeppandi velur jafnt og hinum ýmsu mynd- og hljóðdæmum. Þurfi keppandi því að hafa heppnina sín megin og leika leikinn að kænsku til að reyna að koma andstæðingum sínum fyrir kattanef. Sá sem krýndur verður Meistarinn eftir að hafa lagt alla keppinauta sína í maður-á-mann útsláttarkeppni mun fá að launum 5 milljónir króna í beinhörðum peningum. Í fyrstu umferð sitja tíu manns hjá. Að fyrstu umferð lokinni þurfa þau sextán sem eftir standa að berjast upp á líf og dauða til að komast áfram í næstu umferð, rétt eins og um bikarkeppni sé að ræða. Meistarinn er á dagskrá á fimmtudögum kl. 20.05 og þátturinn er endursýndur á laugardögum um kl. 16:00 og mánudögum kl. 22.55.
Meistarinn Mest lesið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Joe Don Baker látinn Bíó og sjónvarp Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Fleiri fréttir Vaktin: Seinna undankvöld Eurovision VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Sjá meira