Engin ágreiningur um varnarmál 11. apríl 2006 16:01
Forsætisráðherra og utanríkisráðherra segja engan ágreining sín á milli um varnarmál. Stjórnarandstæðingar sökuðu utanríkisráðherra um að upplýsa ritstjóra Morgunblaðsins betur um gang varnarviðræðna við Bandaríkin en utanríkismálanefnd. Hver stjórnarandstæðingurinn á fætur öðrum kom í ræðustól í morgun og kvartaði undan því hve litlar upplýsingar hefðu fengist um gang varnarviðræðna við Bandaríkin. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, lagði út af þögn ráðamanna og leiðaraskrifum í Morgunblaðinu um síðustu helgi. Hún sagði líkast því sem utanríkisráðherra og forsætisráðherra hefðu orðið ásáttir um þagnarbindindi, utanríkisráðherra vegna þess að hann hefði sagt of mikið við ritstjóra Morgunblaðsins og forsætisráðherra vegna þess að hann hefði sagt of mikið á opinberum vettvangi, og það stangast á við stefnu utanríkisráðherra. Geir H. Haarde tanríkismálaráðherra sagðist hafa fjallað ítarlega um málið á þingfundi síðasta fimmtudag og sagðist gera hvort tveggja utanríkismálanefnd og þingheimi grein fyrir stöðu mála þegar það væri tímabært. Hann sagði engan ágreining milli sín og forsætisráðherra. Undir það tók Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og báðir lýstu þeir eftir stefnu Samfylkingarinnar í varnarmálum. Forsætisráðherra sagði það ekki ganga að Samfylkingin þvældist stefnulaus um sali Alþingis.
Alþingi Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira