Ekki ástæða til að rannsaka fangaflug 6. apríl 2006 18:28
Utanríkisráðherra segir ástæðulaust að ætla að landhelgi Íslands hafi verið notuð til að fremja mannréttindabrot. Þetta segir hann þrátt fyrir að Amnesty International telji að Keflavíkurflugvöllur hafi verið notaður í tengslum við leynilegt fangaflug CIA. Amnesty International fullyrðir í nýútkominni skýrslu að bandaríska leyniþjónustan CIA hafi kerfisbundið notfært sér leppfyrirtæki, sem ekkert er á bakvið, til að halda leynd yfir fangaflugi. Flugvélar skráðar hjá þessum fyrirtækjum hafi verið flogið leynilega með fanga meira en þúsund sinnum og ein þeirra lent í Keflavík. Í fréttum okkar í gær sagðist formaður Íslandsdeildar Amensty harma að íslensk stjórnvöld taki ásökunum á hendur bandarísku leyniþjónustunni sem slúðri. Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar spurði utanríkisráðherra á Alþingi í dag hvort ástæða væri til rannsóknar. Geir Haarde benti á að slík rannsókn væri á verksviði dómsmálaráherra, en miðað við þær upplýsingar sem fram hefðu komið væri engin ástæða til slíks. Í skýrslu Amnesty International væri á einum stað vikið að Íslandi og þess getið að ein flugvél, sem notuð hefði verið í þessum tilgangi, hefði í eitt skipti millilent í Keflavíki. Ekkert væri fullyrt um að það hefði verið ólöglegt athæfi. Ráðherra notaði tækifærðið og ítrekaði að íslensk stjónvöld fordæmdu mannréttindabrot hvar sem þau fara fram. Ekki væri ástæða til að ætla að landhelgi Íslands hefði verið notuð til að fremja mannréttindabrot.
Mest lesið Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira