Myndum þurfa að veiða margfalt fleiri dýr 4. apríl 2006 20:19 Hvalskurður í Hvalfirði. MYND/Kristján Ari Einarsson
Íslendingar myndu þurfa að veiða margfalt fleiri hrefnur en nú er gert til að draga úr stofnstærð hrefnunnar og hemja ágang hennar í fiskinn á Íslandsmiðum eins og sjávarútvegsráðherra leggur til. Einar K. Guðfinnsson segir að við myndum þurfa að veiða um 200 hrefnur á ári til að draga úr fjölgun hrefnunnar og enn fleiri ef ætlunin er að minnka stofninn. Bráðabirgðaniðurstöður úr vísindaveiðum Íslendinga á hrefnum gefa til kynna að um sjö til fimmtán prósent af fæðu hrefnunnar sé þorskur, og að allt að þriðjungur sé fiskmeti af einhverri sort. Sjávarútvegsráðherra segir þetta sterk rök fyrir hrefnuveiðum í atvinnuskyni. Vísindaveiðaáætlun Íslendinga byggist á 200 veiddum hrefnum og sú áætlun er hálfnuð núna. Einar reiknar með að hægt verði að ljúka áætluninni á næstu tveimur árum, sem þýðir að veiðiheimildir verði líklega auknar fyrir komandi sumarvertíð. Nú eru um 44.000 hrefnur á landgrunninu við Ísland samkvæmt upplýsingum frá Hafrannsóknarstofnun. Síðastliðin þrjú sumur hafa verið veiddar allt að 39 hrefnum á ári. Þetta er minna en 0,1% af hrefnustofninum. Ef veiða ætti eitt prósent af stofninum væri kvótinn kominn yfir 400 dýr á ári. Íslenski kjötmarkaðurinn annar þeim tæplega fjörutíu hrefnum sem við veiðum á ári eins og er en ef veiðin fer mikið umfram það þurfum við að fara að flytja út. Að sögn Félags hrefnuveiðimanna er mikill markaður fyrir hrefnukjöt í Japan, það væri markaður sem yrði kannaður áður en Íslendingar ákvæðu að hefja veiðar í atvinnuskyni. Einar sagði ljóst að ekki yrði farið út í veiðar í atvinnuskyni ef ekki væri markaður fyrir kjötið. Einar segist ekki hafa áhyggjur af áhrifum hrefnuveiða í atvinnuskyni á ímynd Íslands út á við. Hann segist ekki vita til þess að vísindaveiðarnar hafi haft mikil áhrif á ímynd Íslands út á við hingað til og að þær hafi ekki dregið úr ferðamannastraumi. Hann segir þrýsting á Íslendinga að hætta við hvalveiðarnar hafi verið mun minni en búist hefði verið við.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Sjá meira