Bandaríkjamenn hefja niðurrif í vikunni 3. apríl 2006 15:57 MYND/Teitur
Fjölmennt lið Bandaríkjamanna, sem er sérþjálfað í niðurrifi herstöðva, kemur hingað til lands í vikunni til að rífa niður stjórnstöðvar hersins og fleira. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar er um að ræða allt að 200 manna lið, sem meðal annars mun rífa niður tvær af þremur stjórnstöðvum hersins á Keflavíkurflugvelli. Eftir að þær stöðvar eru farnar mun verða illgerlegt að stýra átökum frá Keflavíkurstöðinni. Búnaðurinn verður fluttur til annarra herstöðva. Hvorki bandarísk né íslensk stjórnvöld hafa gefið upp hvað verður eftir á Keflavíkurflugvelli eftir brottför hersins og undir hvaða stjórn, en ljóst er að Bandaríkjamenn eru þegar farnir að vinna eftir niðurrifs- og flutningsáætlun, hvort sem hún hefur verið kynnt íslenskum stjórnvöldum eða ekki. Þá munu vera til eldsneytisbirgðir fyrir orrustuþotur Bandaríkjamanna að verðmæti um tveir milljarðar króna á Keflavíkurflugvelli. Þetta eldsneyti gengur ekki á venjulegar farþegaþotur og því spurning hvort eldsneytið verði flutt af landi brott. Mennirnir sem koma hingað til niðurrifs- og flutningsstarfa í vikunni hafa, samkvæmt heimildum NFS, unnið við svipuð störf í fjölda bandarískra herstöðva í Evrópu undanfarin ár. Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi varnarliðsins, segist ekki geta staðfest þessar upplýsingar fréttastofunnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Fleiri fréttir Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Sjá meira