Innlent

Kynningarátak til að efla trú á íslensku efnahagslífi

Forsætisráðuneytið og viðskiptabankarnir ætla í sameiginlegt kynningarátak til að efla trú útlendinga á íslensku efnahagslífi. Þetta kom fram í máli Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra á ársfundi Seðlabankans í dag.

Hann sagði að í kynningarátakinu þyrfti sérstaklega að koma fram styrkur og sveigjanleiki íslensks efnahagslífs til að takast á við utanaðkomandi sveiflur er mun meiri en áður var. Einnig þyrfti að koma fram að Ísland væri betur í stakk búið en áður að takast á við hugsanleg vandamál sem upp kunna að koma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×