Íslenska ríkið sýknað af bótakröfu 31. mars 2006 17:39
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af bótakröfu manns sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald vegna gruns um að hann tengdist fíkniefnasmygli árið 2004. Við rannsókn kom ekkert fram sem benti til þess að maðurinn tengdist málinu og krafðist hann 11 milljóna króna í miskabætur en þeirri kröfu hafnaði héraðsdómur. Í febrúar 2004 tóku tollverðir til skoðunar vörusendingu frá Nepal sem innihélt rúmlega 10 kíló af hassi og var sendingin stíluð á manninn. Þegar hann leysti vöruna út var hann handtekinn og síðan úrskurðaður í gæsluvarðhald. Maðurinn hélt því statt og stöðugt fram að hann vissi ekkert um sendinguna en þar sem hann hafi fengið tilkynningu um hana hafi hann leyst hana út. Ekkert kom fram við rannsókn sem tengdi manninn við málið að öðru leyti og var honum sleppt úr gæsluvarðhaldi eftir viku. Í niðurstöðu dómsins segir að telja verði eðlilegt í ljósi atburðarásarinnar, og þess að maðurinn hafði áður hlotið dóm fyrir fíkniefnamisferli, að rökstuddur grunur hafi fallið á hann um að hann hefði framið brot og réttmætt hafi verið að handtaka stefnanda við þessar aðstæður. Ekki hafi verið sýnt fram á annað en að uppfyllt hafi verið lagaskilyrði til þess að kveða á um gæsluvarðhald. Þá segir dómurinn, að ekki þykir sýnt fram á í málinu að ríkið beri ábyrgð á umfjöllun fjölmiðla um umrætt mál eða ábyrgð á meintum mannorðsmissi mannsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira