Innlent

Járniðnaðarmenn og vélstjórar sameinast

Félag járniðnaðarmanna og Vélstjórafélags Íslands hafa samþykkt að sameina þessi tvö félög og verður gengið frá nýju nafni á félagið og kosið í stjórn stofnfundi nýja félagsins í maílok. Kosið var um sameininguna og voru 92,6 prósent félagsmanna hjá Félagi járniðnaðarmanna samþykk sameiningunig og 54 prósent félagsmanna hjá Vélstjórafélaginu.

Talningu atkvæða í kosningu um sameiningu Félags járniðnaðarmanna og Vélstjórafélags Íslands er nú lokið. Sameining þessara tveggja gamalgrónu félaga var samþykkt hjá báðum félögum.

 

Ljóst er að fjárhagslegur ávinningur gæti orðið töluverður og sjóðir sterkir í nýju sameinuðu félagi sem telur um 4000 félagsmenn. Í fáum orðum sagt má búast við að sameinað félag verði stórt, öflugt og vel rekið verkalýðsfélag á landsvísu, með sterka samningsstöðu.

 

Samkvæmt samningi félaganna um sameiningu er stefnt að stofnfundi nýs félags í lok maí 2006. Á þeim fundi taka ný lög gildi, gengið verður frá nafni á nýja félagið og kosið í stjórn til næstu tveggja ára. Fjárhagsleg sameining og uppgjör miðast við 1. janúar 2007. Tímasetning stofnfundar og frestur til að skila inn hugmyndum um nýtt nafn og merki verður auglýst fljótlega.

 

Hjá Félagi járniðnaðarmanna greiddu 495 eða 38,5 % atkvæðabærra atkvæði og sögðu 449 eða 92,6%% já en 36 eða 7,4 % nei. Auðir og ógildir seðlar voru 10.

Hjá Vélstjórafélaginu greiddu 725 eða 44% atkvæðabærra atkvæði og sögðu 390 eða 54% já en 316 eða 44% nei. Auðir og ógildir seðlar voru 19.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×