Innlent

Dæmdur fyrir fjárdrátt í opinberu starfi

Hæstiréttur dæmdi í dag fyrrverandi framkvæmdastjóra Fjórðungssambands Vestfjarða í tólf mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt. Þar af eru níu mánuðir skilorðsbundnir. Maðurinn var ákærður fyrir að draga sér sautján milljónir króna og viðurkenndi hann það, en ekki að hafa verið í opinberu starfi. Hæstiréttur taldi hins vegar, eins og héraðsdómur, að svo hefði verið. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×