Lögreglan hyggst leita eftir samstarfi vegna grófra árása 5. mars 2006 12:45 MYND/Páll
Ungur maður var stunginn með hnífi fyrir framan skemmtistaðinn Glaumbar við Tryggvagötu um hálf sexleytið í morgun. Hann var fluttur á slysadeild Landspítalans og liggur nú á gæsludeild en maðurinn hlaut fimm stungusár á baki og mjöðm. Að sögn vakthafandi læknis er maðurinn úr lífshættu og er líðan hans ágæt eftir atvikum. Þrír menn sem grunaðir eru um aðild að árásinni eru í haldi lögreglu en ekki liggur fyrir hvort fleiri en einn beittu eggvopni. Þetta er önnur hnífsstungan í miðborg Reykjavíkur um helgina en í fyrrinótt var ungur maður stunginn tvisvar í bakið inni á skemmtistaðnum Gauki á Stöng sem einnig er við Tryggvagötu. Annað lunga hans féll saman en hann er úr lífshættu og segir læknir ástand hans gott miðað við aðstæður. Lögregla handtók í gær tvo menn í tengslum við þá árás og eru þeir enn í haldi. Líklega verður óskað eftir gæsluvarðhaldsúrskurði yfir öðrum þeirra í dag. Að sögn Geirs Jóns Þórissonar yfirlögregluþjóns hefur gróft ofbeldi í líkingu við þessar tvær árásir aukist undanfarin ár, auk þess sem hnífaburður virðist hafa færst mjög í aukana. Lögreglan hyggst leita eftir samstarfi við rekstraraðila veitingastaða í borginni til að reyna að sporna betur við árásum sem þessum og lögregla komi þá til að mynda fyrr á vettvang. Bæði komi til greina að koma upp talstöðvarsambandi eða beintengdu símasambandi á milli lögreglu og dyravarða. Að sögn Geir Jóns stefnir lögreglan að því að koma á slíku samstarfi í tilraunaskyni við nokkra veitingastaði fyrir sumarið.
Fréttir Innlent Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira