Innlent

Dómur Hæstiréttar vegna SPH á næstu grösum

 

Fyrirtæki tengd Baugi fjármögnuðu að miklu leyti kaupin á stofnfé í Sparisjóði Hafnarfjarðar, sem nú eru til rannsóknar hjá Fjármálaeftirlitinu og efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra. Hæstiréttur sker á allra næstu dögum úr um hvort Fjármálaeftirlitinu hafi, í tengslum við rannsóknina, verið heimilt að rannsaka bankareikninga lögmannsstofu að eigendum hennar forspurðum.

 

Málið komst í hámæli í lok júní í fyrra þegar greint var frá því fjölmiðlum að 30 af 47 stofnfjárhluthöfum í Sparisjóði Hafnarfjarðar hefðu þegar selt hluti sína í sjóðnum. Nafnverð á hlut væri um 200 þúsund krónur en söluverðið tæpar 50 milljónir. Mikil leynd hvíldi yfir kaupunum og Fjármálaeftirlitið, -sem hafði ekki fengið tilkynningu um að til stæði að mynda virkan eignarhlut í Sparisjóðnum, -hóf rannsókn.

 

 

Síðan þá hafa bréf gengið á milli fjármálaeftirlitsins, stofnfjáreigenda og lögmanna þeirra. Efnahagsbrotadeild lögreglunnar kom síðan að málinu undir áramót. Málið opnaðist smám saman, í janúar úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur að Landsbankinn skyldi afhenda fjármálaeftirlitinu upplýsingar um bankareikninga Lögmanna í Laugardal í tengslum við málið. Lögmennirnir kærðu til Hæstaréttar, -og er úrskurðar að vænta þaðan von bráðar.

 

 

Til að flækja málið enn frekar, var skipt um nær alla stjórn sparisjóðsins á nýjan leik í janúar, -en í þetta sinn var þó ekki um byltingu að ræða. Allan tímann hefur mikil leynd hvílt yfir stofnfjárhluta-kaupunum, sérstaklega um hvaðan peningarnir til þeirra kæmu.

 

 

Þetta skýrðist þó að töluverðu leiti í morgun, -en Morgunblaðið greinir frá því í dag að yfirvöld rannskaki nú meðal annars, -hvort fimm tiltekin fyrirtæki, -hafi fjármagnað kaup fjölmargra einstaklinga á stofnfjárbréfum í Sparisjóði Hafnarfjarðar. Tvö þeirra eru dótturfélög Baugs, A Holdings og Hagar, -og þaðan kemur megnið af peningunum samkvæmt frétt blaðsins. Fyrirtækin fimm hafi lagt inn rúmlega tvo og hálfan milljarð á banakareikning lLögmanna í Laugardal, -og eitthvað af þessu fé hafi síðan verið greitt til baka. Þetta kemur heim og saman við þær skýringar sem fréttastofa hefur fengið. Að hér hafi verið um að ræða lán.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×