Erlent

200 þúsund manns á hryðjuverkalista

Frá fangabúðum Bandaríkjamanna á Guantanamo-flóa við Kúbu.
Frá fangabúðum Bandaríkjamanna á Guantanamo-flóa við Kúbu. MYND/Reuters

Bandarísk yfirvöld búa yfir gagnagrunni sem hefur að geyma nöfn 325 þúsund manna sem grunaðir eru um aðild eða stuðning við hryðjuverk. Frá þessu greinir bandaríska dagblaðið Washington Post. Blaðið hefur eftir nafnlausum heimildarmönnum hjá leyniþjónustu landsins að fjöldi fólks á listanum hafi fjórfaldast frá árinu 2003 en getur þess þó að líklega séu nokkuð margir skráðir undir nokkrum nöfnum og því nái listinn yfir um 200 þúsund manns. Flestir þeir sem eru á listanum eru sagðir erlendir ríkisborgarar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×