Erlent

Vilja segja upp samningum við SAS vegna flugmannadeilu

Stórir viðskiptavinir skandinavíska flugfélagsins SAS vilja nú hverjir á fætur öðrum segja upp samningum sínum við félagið vegna langvarandi deilu þess við flugmenn sína. Frá þessu er greint í Jótlandspóstinum. Forsvarsmenn SAS reyna nú að rétta við fjárhag félagsins með því að endurskipuleggja starfsemina og munu að öllum líkindum segja upp nokkrum fjölda flugmanna en þeir hafa hótað verkfalli. Flugmennirnir fóru í verkfall í síðasta mánuði og haft er eftir forsvarsmönnum SAS að stórir viðskiptavinir geti ekki búið við óvissu um frekari verkföll og því vilji þeir rifta samningum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×