Múgur minnist Hariris 14. febrúar 2006 13:15 Stuðningsmenn mynda tákn sannleikans með regnhlífum. Þeir hafa barist fyrir því í ár að morðið á Hariri verði upplýst. MYND/AP
Meira en 200.000 manns hafa safnast saman á götum Beirúts, höfuðborgar Líbanons í morgun, til að minnast þess að ár er liðið síðan Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra landsins var ráðinn af dögum. Öryggisgæsla í höfuðborginni hefur verið snarhert. Í dag er ár liðið síðan bílsprengja sprakk nærri bílalest Hairiris, með þeim afleiðingum að hann og tuttugu aðrir týndu lífi. Ekki verður annað sagt en að atburðurinn hafi dregið dilk á eftir sér. Eftir ítrekaðar hótanir greip alþjóðasamfélagið loks til aðgerða og Sýrlendingar neyddust til að fara með herlið sitt burt frá Líbanon, eftir áratuga hersetu. Í morgun vottuðu tvö hundruð og fimmtíu þúsund manns Hairiri viðringu sína á aðaltorginu í Beirút. Búist er við að enn muni fjölga í hópnum eftir því sem líður á daginn og hápunkturinn verður svo um miðjan daginn, eða á svipuðum tíma og sprengjan sprakk. Opinberar stofnanir eru margar lokaðar í dag og engin starfsemi er í skólum í höfuðborginni. Mikil öryggisgæsla verður í höfuðborginni á meðan minngarathöfnin stendur yfir. Þúsundir her- og lögreglumanna, gráir fyrir járnum, vakta aðaltorgið í allan dag.
Mest lesið Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Erlent Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Fundu kannabisplöntur við húsleit Innlent Fleiri fréttir Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Sjá meira