Erlent

Segist hafa verið í hungurverkfalli

Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, við réttarhöldin í morgun.
Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, við réttarhöldin í morgun. MYND/AP

Saddam Hussein sagðist í morgun hafa verið í hungurverkfalli í þrjá daga til að mótmæla meðferðinni á sér við réttarhöldin sem nú standa yfir. Aðrir sem ákærðir eru í málinu segjast líka hafa verið í hungurverkfalli, en eins og kunnugt er hefur Saddam Hússein trekk í trekk mótmælt framkvæmd réttarhaldanna. Sakborningarnir segjast ætla að halda hungurverkfallinu áfram ef ekki verður skipt um dómara í réttarhöldunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×