Erlent

Fimmtán særðust í tilræði í Istanbúl

Frá vettvangi tilræðisins.
Frá vettvangi tilræðisins. MYND/AP

Fimmtán særðust þegar sprengja sprakk í stórmarkaði í Istanbnúl seint í gærkvöld. Stór hluti stórmarkaðarins jafnaðist við jörðu og rúður splundruðust í nærliggjandi húsum. Samkvæmt tyrkneskum fjölmiðlum hefur herskár hópur Kúrda lýst yfir ábyrgð á tilræðinu, en hópurinn stóð á bak við sprengjuárás á netkaffihús í Istanbúl á dögunum þar sem einn lést og 16 særðust. Hópurinn sem nefnist Frelsissamtök Kúrdistnas er talinn tengdur PKK, stærsta uppreisnarhópi Kúrda sem berst fyrir sjálfstæði Kúrdistans í suðausturhluta Tyrklands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×