Innlent

Verðmæti Avion Group jókst um 12,7 milljarða

Verðmæti Avion Group jókst um 12,7 milljarða króna á fyrsta degi félagsins í kauphöll Íslands í dag. Fyrirtækið er það stærsta sem skráð hefur verið í Kauphöllina og segir forstjóri hennar að skráningin styrki hana í samkeppni við aðrar kauphallir.

Það ríkti mikil eftirvænting í Kauphöll Íslands í morguná fyrsta degi Avion í kauphöllinni. Ákveðið var að setja fyrirtækið á markað í desember og rétt fyrir jól lauk útboði á hlutum í fyrirtækinu til fagfjárfesta. Þeim var boðið að kaupa hlutabréf á genginu 38,3 upp á sex milljarða króna en tilboð bárust hins vegar í hlut upp á hundrað og tvo milljarða.

Þegar þessi mikli áhugi lá fyrir var ákveðið að hækka útboðið upp í tíu milljarða. Og þessi mikli áhugi hélt áfram í dag.

Í lok þessa fyrsta dags hjá kauphöllinni var verðmæti fyrirtækisins komið í áttatíu og einn komma fjóra milljarða króna. Við upphaf skráningar í morgun var gengi bréfa í Avion 38,3 en það er nú komið í 45,4 og hefur hækkað um 18,5 prósent. Alls var verslað með bréf í fyrirtækinu fyrir 3,3 milljarða króna í hátt í 900 viðskiptum, sem jafngildir því að um 4% hlutafjár hafi skipt um hendur.

Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, segir að það sé akkur í að fá alþjóðlegt fyrirtæki eins og Avion í Kauphöll Íslands. Það dýpki markaðinn og verðmyndun á honum verði betri og heilbrigðari.

Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, segir að það sé akkur í að fá alþjóðlegt fyrirtæki eins og Avion í Kauphöll Íslands. Það dýpki markaðinn og verðmyndun á honum verði betri og heilbrigðari.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×