Verðmæti Avion Group jókst um 12,7 milljarða 20. janúar 2006 21:47
Verðmæti Avion Group jókst um 12,7 milljarða króna á fyrsta degi félagsins í kauphöll Íslands í dag. Fyrirtækið er það stærsta sem skráð hefur verið í Kauphöllina og segir forstjóri hennar að skráningin styrki hana í samkeppni við aðrar kauphallir. Það ríkti mikil eftirvænting í Kauphöll Íslands í morguná fyrsta degi Avion í kauphöllinni. Ákveðið var að setja fyrirtækið á markað í desember og rétt fyrir jól lauk útboði á hlutum í fyrirtækinu til fagfjárfesta. Þeim var boðið að kaupa hlutabréf á genginu 38,3 upp á sex milljarða króna en tilboð bárust hins vegar í hlut upp á hundrað og tvo milljarða. Þegar þessi mikli áhugi lá fyrir var ákveðið að hækka útboðið upp í tíu milljarða. Og þessi mikli áhugi hélt áfram í dag.Í lok þessa fyrsta dags hjá kauphöllinni var verðmæti fyrirtækisins komið í áttatíu og einn komma fjóra milljarða króna. Við upphaf skráningar í morgun var gengi bréfa í Avion 38,3 en það er nú komið í 45,4 og hefur hækkað um 18,5 prósent. Alls var verslað með bréf í fyrirtækinu fyrir 3,3 milljarða króna í hátt í 900 viðskiptum, sem jafngildir því að um 4% hlutafjár hafi skipt um hendur.Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, segir að það sé akkur í að fá alþjóðlegt fyrirtæki eins og Avion í Kauphöll Íslands. Það dýpki markaðinn og verðmyndun á honum verði betri og heilbrigðari.Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, segir að það sé akkur í að fá alþjóðlegt fyrirtæki eins og Avion í Kauphöll Íslands. Það dýpki markaðinn og verðmyndun á honum verði betri og heilbrigðari.
Mest lesið „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Fleiri fréttir Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Sjá meira