Krefjast þess að gögnin verði gerð opinber 20. janúar 2006 21:33
Eftirlitsstofnun EFTA aflétti í dag trúnaði af skjölum sem varða umfjöllun stofnunarinnar um frumvarp sem menntamálaráðherra lagið fram um ríkisútvarpið á vorþingi 2005. Stjórnarandstaðan krafðist þess að gögnin yrðu gerð opinber. Upphaflegt frumvarp menntamálaráðherra var lagt fram á vorþingi 2005 og var þá gert ráð fyrir að ríkisútvarpið yrði gert að sameignarfélagi í eigu ríkisins. ESA var sent erindi vegna frumvarpsins. Fram kom að stofnunin teldi að sameignarfyrirkomulagið leiddi til ólögmæddra ríkisstyrkja þar sem ríkið tæki á sig ótakmarkaða ábyrgð á öllum skuldbindingum ríkisútvarpsins. Þess vegna hefur menntamálaráðherra talað um að hlutafélagavæðing RÚV kæmi ein til greina. Stjórnarandstaðan hefur krafist þess að sjá gögnin frá ESA til að ræða málið frekar. Formaður menntamálanefndar, Sigurður Kári Kristjánsson og Mörður Árnason, fulltrúi minnihlutans í nefndinni tókust á um málið á NFS í dag eftir að leyndinni hafði verið aflétt af gögnunum. Þingmennirnir tveir tókust reyndar einnig á í morgun áður en að leyndinni um gögnin hafði verið aflétt. Gerðist það þegar Sigurður Kári hóf óvænt máls á að þingmenn stjórnarandstöðunnar í menntamálanefnd hefðu fúlsað við gögnunum frá ESA undir liðnum störf þingsins. Þá var Mörður staddur á skrifstofunni sinni handa Austurvallar. Vildi hann svara fyrir sig og fór á hlaupum yfir völlinn með hálstau í hendi og batt hann bindishnútinn móður og másandi áður en hann gat stigið í pontu eins og venja og hefð gerir ráð fyrir. Sjá má fréttina í heild sinni á VefTíVí Vísis.
Fréttir Innlent Mest lesið Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Innlent Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Erlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Innlent Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Innlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Fleiri fréttir Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Sjá meira