KLH rannsóknastofa öðlast faggildingu 11. janúar 2006 17:04
Klínísk lífefnafræðistofa Holtasmára, eða KLH hefur tekið við vottorði frá SWEDAC, faggildingarstofnun Svíþjóðar, því til staðfestingar að algengustu mælingar KLH væru faggildar. KLH er fyrsta íslenska rannsóknastofa á heilbrigðissviði sem öðlast faggildingu. Faggilding er staðfesting á því að rannsóknastofan uppfylli kröfur er varða tæki, húsnæði og hæfni starfsfólks og jafnframt að öflugt innra eftirlit í formi gæðakerfis sé til staðar eins og tilgreint er í staðlinum ISO 15189. Þannig á að vera tryggt að mælingar séu ávallt framkvæmdar af hæfum aðilum þar sem fagmennska er höfð í fyrirrúmi. KLH ehf. er sérhönnuð rannsóknastofa sem hefur starfað í 38 ár við blóðmælingar í tengslum við rannsóknir Hjartaverndar og annast lífsýnasafn Hjartaverndar. Til ársloka 2004 var rannsóknastofan rekin sem sérstök rekstrareining innan Hjartaverndar en frá ársbyrjun 2005 sem einkahlutafélag. Rannsóknastofan er sérhönnuð og var m.a. útbúin með það að markmiði að geta tekist á við öll verkefni sem óskað var eftir í tengslum við Öldrunarrannsókn Hjartaverndar (AGES Reykjavik Study). KLH vinnur einnig að öðrum rannsóknaverkefnum á vegum Hjartaverndar og tilteknum verkefnum í samvinnu við ýmsa aðila bæði innlenda og erlenda, þ.m.t. mælingar í klínískum lyfjarannsóknum. Grunnur að starfsemi rannsóknastofunnar hefðbundnar klínískar lífefnarannsóknir á blóði, blóðvökva og þvagi, sem framkvæmdar hafa verið allt frá stofnun Rannsóknarstöðvar Hjartaverndar 1967. Að auki hefur um árabil verið unnið að rannsóknum á DNA og athugaðir ýmsir erfðabreytileikar, einkum þeir sem tengjast hjarta- og æðasjúkdómum en fyrirséður er mikill vöxtur á því sviði. Einangrun hvítra blóðfruma í Öldrunarrannsókninni hefur einnig opnað möguleika á nýrri nálgun þeirra viðfangsefna sem unnið er að.
Fréttir Innlent Mest lesið Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Fullkomin lending eftir sögulega ferð Erlent Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Innlent Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Innlent „Arc de Trump“ rísi í Washington Erlent Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Veður Sólheimar segja upp þjónustusamningnum Innlent Segir Stefán hafa gert atlögu að friðhelgi einkalífs Innlent Fleiri fréttir Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Kristrún kynnir planið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar Barátta við verðbólgu, eltihrellir og brugðist við breyttri Reynisfjöru Engir glæpir á bak við aukið sírenuvæl í borginni Bæjarfulltrúa í Grindavík misboðið: „Sleppið af okkur klónum“ Gabríel Douane í síbrotagæslu: Einn handtekinna vegna líkamsárásar í mars Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Börn flytji ekki til Grindavíkur á meðan óvissa varir Mikilvægt að tala saman, líka karlar Krefjast þess að framkvæmdir við Kaffistofuna verði stöðvaðar Bein útsending: Kynna áform um endurreisn Grindavíkur Sjá meira