Gætu hafið starfsemi um svipað leyti og álver á Húsavík 4. mars 2006 12:06 Hitaveita Suðurnesja MYND/Vísir
Hitaveita Suðurnesja telur sig geta útvegað nægilega orku til álvers í Helguvík til að það geti hafið starfsemi um svipað leyti og álver á Húsavík. Forstjóri Hitaveitunnar, Júlíus Jónsson, telur hins vegar að það geti verið skynsamlegt að fresta framkvæmdum þar sem öll uppbygging verði dýrari á þenslutímum. Hitaveita Suðurnesja stefnir að því að gangsetja hina nýju Reykjanesvirkjun þann 1. maí næstkomandi en orka hennar fer til álversins á Grundartanga. Fyrir á Hitaveitan orkuverið í Svartsengi. Eftir að Orkuveita Reykjavíkur gekk úr skaftinu í fyrra er Hitaveita Suðurnesja eina orkufyrirtækið í viðræðum um að útvega rafmagn til álvers í Helguvík. Júlíus vonast til að þá orku geti fyrirtæki fengið úr háhitasvæðum Reykjanesfjallgarðar, með stækkun Reykjanesvirkjunar og með nýjum virkjunum, en fyrirtækið er með rannsóknarleyfi í Trölladyngju og Sandfelli við Krýsuvík. Hann segir að framleiðsla gæti hafist árið 2010 eða 2011, ef allt gengur upp, en það sé spurning hversu sniðugt það væri viðskiptalega ef hinar tvær hugmyndirnar verði að veruleika vegna væntanlegrar þenslu. Því geti farið svo að framkvæmdum verði frestað lítillega. „Við erum bara í viðskiptum, ekki í pólitík," segir Júlíus.
Fréttir Innlent Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira