Tvö þorp á kafi í leðju eftir aurskriður 17. febrúar 2006 12:15 Á þessari mynd úr sjónvarpi sjást björgunarmenn að störfum á eynni Leyte þar sem aurskriðurnar féllu. MYND/AP
Tvö þúsund manns kunna að hafa farist í einhverjum mestu aurskriðum í sögu Filippseyja í nótt. Tvö þorp hafa nánast alveg grafist í kaf í leðju eftir ofsaveður undanfarna daga. Úrhellisrigning hefur verið á austurhluta Filippseyja undanfarnar tvær vikur og viðbúið var að veðurhamurinn myndi enda með ósköpum. Í morgunsárið dundi svo ógæfan yfir. Þá féll stór aurskriða niður úr fjallshlíð með þeim afleiðingum að nokkur hundruð hús fóru alveg á kaf, þar á meðal leikskóli fullur af börnum. Útlit er fyrir að hundruð hafi farist og fimmtán hundruð manna er enn saknað. Embættismenn á svæðinu sögðust í morgun óttast að tvö þúsund manns hefðu týnt lífi. Rauði krossinn hefur falast eftir því að bandarískar herþyrlur sem eru við störf í landinu verði þegar sendar á vettvang til að reyna að bjarga því sem bjargað verður. Nú þegar eru fjölmargir björgunarmenn að störfum, en heill ferkílómetri er þakinn þykkri leðju sem er óstöðug og því gengur hjálparstarfið hægt. Síðar í dag verður stór flugvél með tæki og hunda til leitar send á hamfarasvæðin, í þeirri von að það takist að finna fólk á lífi í brakinu og aurnum.
Erlent Fréttir Mest lesið Íris Helga neitar sök Innlent Segir Icelandair ætla að færa störf frá Íslandi Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Öðruvísi kappræður í beinni útsendingu með gestum í sal Innlent Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Innlent Árasin einkenndist af talsverðri heift Innlent Mæla með stigvaxandi aðgerðum fámenns teymis sigmanna Innlent Skaut á bíla af handahófi með riffli Erlent Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Innlent Ákæran á hendur Írisi Helgu: Sakaði menn um barnaníð, laug upp á börn og lét maka saur Innlent Fleiri fréttir Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street ChatGPT sagt hafa ráðlagt byssumanni að myrða börn Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Viðræður virðast stranda á kjarnorkumálunum „Gjörsamlega óásættanlegt“ Frakki sýndi veirueinkenni og allir fimm skikkaðir í einangrun Fallhlífastökkvarar aðstoða með hantasmit á afskekktri eyju „Lífið heldur bara áfram sinn vanagang“ Fyrrverandi ráðherra vill þvinga fram leiðtogakjör Fyrstu farþegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Sjá meira