Þorrinn hefst með Bóndadegi á morgun 19. janúar 2006 22:08 Mynd/Pjetur
Þorrinn hefst á morgun með tilheyrandi þorramat og þorrablótum. Bóndadagur markar upphaf Þorrans en samkvæmt hefðinni eiga karlmenn að vakna árla morguns og hoppa um hálfnaktir á einum fæti í kringum hús sitt. Óhætt er að segja að Íslendingar leggja meiri rækt við sumar hefðir en aðrar. Þorramaturinn er sívinsæll en það munu eflaust ekki fara margar sögur af hálfnöktum karlmönnum hoppandi í kringum hús sitt í tilefni bóndadagsins. Margir karlmenn gleðjast þess í stað yfir góðum gjöfum frá spússum sínum enda eru íslenskar konur sagðar duglegar að gefa mönnum sínum blóm og gjafir á Bóndadeginum. Elva Björk Jónatansdóttir, blómaskreytir á Blómastofu Friðfinns, segir mikið um að konur gefi mönnum sínum sérstök blóm. Þá séu einnig skreytingar ýmisskonar vinsælar og algengt sé að smá gjöf sé laumað með líkt. Jóhannes Stefánsson, eigandi Múlakaffi, segir að undirbúningurinn fyrir Þorrann hafi gengið vel í ár. Fleiri þúsund manns munu borða þorramat frá Þorrakónginum í ár. Jóhannes segir að þrjá síðustu daga fyrir Þorra sé ávallt mikið að gera og unnið sé nótt sem nýtan dag til að gera allt klárt. Hann segir svokallaðar hjónaöskjur vinsælar en auk þess sé boðið upp á þorramat á Múlakaffi og einnig sjái Múlakaffi um mat í tengslum við mörg þorrablót og mannfagnaði fyrir lítil sem stærri fyrirtæki. Félagarnir Hörður Hjartarson og Guðmundur Grímsson segjast hlakka til Þorrans enda séu þeir báðir aldir upp við þorramat og þyki hann góður. Báðir segjast þeir vera mikið fyrir þorramatinn og borði öllu jafna mikið af honum.
Fréttir Innlent Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya olli löngum röðum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira