Trúnaðarmaður starfsmanna á Kárahnjúkasvæðinu rekinn 14. febrúar 2006 22:41 MYND/GVA
Einn trúnaðarmanna starfsmanna á Kárahnjúkasvæðinu var í dag rekinn úr starfi. Yfirtrúnaðarmaður á svæðinu segir engar skýringar hafa verið gefnar á uppsögninni. Upplýsingafulltrúi Impregilo segir að maðurinn hafi ítrekað gerst brotlegur í starfi. Oddur Friðriksson, yfirtrúnaðarmaður á svæðinu, vill að forsvarsmenn Impregilo svari því afhverju trúnaðarmaðurinn var rekinn úr starfi. Oddur ætlar að gefa Impregilo færi á að senda skriflega greinagerð í kvöld en svo verði gripið til viðeigandi ráðstafana. Fyrir uppsögn trúnaðarmanns verði að liggja ærnar ástæður. Ómar R. Valdimarsson, upplýsingafulltrúi Impregilo, segir að umræddur starfsmaður hafi ítrekað gerst sekur um umferðarlagabrot og að fylgja ekki reglum sem fyrirtækið setur sínum starfsmönnum. Hann hafi þrisvar lent í umferðaróhappi og ekki haldið tímaskýrslu. Ómar segir ljóst að trúnaðarmenn þurfi einnig að fylgja settum reglum. Oddur telur að þær sakir sem starfsmanninum séu gefnar séu ekki á rökum reistar. Vissulega séu ástæður fyrir áminningunum en að hans mati séu þær einfaldlega ekki fullnægjandi heldur aðeins söguskýringar af hálfu öryggiseftirlits Impregilo. Oddur telur að Íslendingar á svæðinu eigi undir högg að sækja en aðeins eru 38 íslenskir starfsmenn af þeim 1200 sem starfa hjá Impregilo. Ómar segir að gríðarlega mikil starfsmannavelta sé hjá fyrirtækinu. Íslendingar séu að sjálfsögðu velkomnir í vinnu hjá þeim. Illa hafi gengið að ráða Íslendinga þar sem eftirspurn hér á landi eftir starfsfólki sé mun meiri en framboðið.
Fréttir Innlent Mest lesið Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Erlent Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Innlent Fleiri fréttir Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Sjá meira