Ágreiningur um stækkun álvers í bæjarstjórn Hafnarfjarðar 25. janúar 2006 21:50 Mynd/Arkís
Djúpstæður ágreiningur er í bæjarstjórn Hafnarfjarðar um stækkun álversins í Straumsvík og meirihluti Samfylkingarinnar er klofinn. Þrátt fyrir andstöðu er þó líklegast að framkvæmdaleyfið verði veitt, fyrir tilstilli minnihluta sjálfstæðismanna í bæjarstjórn. Stækkun álversins hefur verið til umræðu í bæjarkerfinu í Hafnarfirði í langan tíma, en deiliskipulag svæðisins var kynnt síðasta sumar. Fjölmargar athugasemdir bárust og bæjaryfirvöld vinna enn hörðum höndum að því að svara þeim. Á meðan hefur stækkunin verið rædd í bæjarkerfinu og þar eru menn ekki á eitt sáttir. Valgerður Halldórsdóttir bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar er á móti því að álverið í Straumsvík verði stækkað, flestir aðrir bæjarfulltrúar flokksins eru fylgjandi stækkuninni. Hið sama á við um sjálfstæðismennina í bæjarstjórn. Svokallað mengunarsvæði var fyrst skilgreint í starfsleyfi álversins um miðjan sjöunda áratuginn og hefur lítið breyst síðan. Þó var svokallað þynningarsvæði umhverfis álverið skilgreint árið 1995 og ekki má vera íbúabyggð innan þess. Ekki stendur til að þetta svæði stækki eða að mengun aukist að ráði með stækkun álversins. Gangi það eftir virðist málið eiga greiða leið í bæjarstjórn. Hins vegar hefur meira borið á andstöðu við stækkun álversins annars staðar í bæjarkerfinu. Umhverfisnefnd Hafnarfjarðar samþykkti til dæmis í sumar bókun þar sem fram kemur að nefndin leggist ekki gegn því að málið sé skoðað og deiliskipulagið rætt og kynnt en þó kysi hún að öll áform um stækkunina yrðu lögð til hliðar. Nefndin telji það þjóna best hagsmunum Hafnfirðinga til lengdar að ekki verði tekið meira land svo nærri íbúðabyggð undir mengandi stóriðju en það sem þegar sé búið að ráðstafa til slíkrar starfsemi. Hugmyndir hafa verið uppi um atkvæðagreiðslu meðal bæjarbúa um stækkunina og hefur bæjarstjórinn sagt hana vel koma til greina. Haraldur Þór Ólason, sem mun leiða lista Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnarkosningunum í vor, segir að sjálfstæðismenn muni beita sér fyrir að stækkun álversins að því tilskyldu að mengunarkröfur verði uppfylltar. Þá telur hann atkvæðagreiðslu meðal bæjarbúa um málið óþarfa og telur kjörna bæjarfulltrúa fullfæra um að taka ákvörðun í málinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Innlent Tveimur sagt upp á Bifröst Innlent Mokgræðir á rafmyntum Innlent Fleiri fréttir Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar og ráðherra sakar starfsmenn Hvals um fíflaskap Lokaeinkunnirnar vísbending um ósamræmda einkunnagjöf Komu slösuðum til bjargar í Drangey Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Tímamót hjá Klettaskóla: „Allir mjög peppaðir“ Sjá meira