Ásgeir ætlaði ekki að særa neinn 3. nóvember 2006 12:00 Er leiður yfir að sumir túlka orð þeirra Arnars Gauta sem snobb. "
Auðvitað er leiðinlegt ef fólk misskilur það sem maður segir og jafnvel sárnar," segir Ásgeir Kolbeinsson fjölmiðlamaður en viðtal við hann í þættinum Innlit/útlit, sem sýndur var á Skjá einum á þriðjudag, hefur valdið fjaðrafoki. Skjá einum bárust margar kvartanir eftir þáttinn, þar sem Arnar Gauti ræddi við Ásgeir um endurbætur sem hann réðst í á heimili sínu. Fór fyrir brjóstið á mörgum að tvímenningarnir notuðu orð á borð við "viðbjóður" og "ógeð" til að lýsa því sem virtust venjulegar innréttingar. Ásgeir er leiður yfir málinu og segir það á misskilningi byggt. "Ég keypti þessa íbúð gagngert til að gera hana upp og fékk hana á lægra verði því hún var í svo slæmu ásigkomulagi." Hann segir hluti oft líta betur út í sjónvarpi en í raun og veru og myndavélin hafi ekki fangað alls kyns ófögnuð sem þeir Arnar voru að vísa til. "Ég ætlaði hvort eð er að rífa allt út þannig íbúðin hafði ekki verið þrifin lengi; komin væg ólykt inn á klósett, parketið flagnað, veggir útbarðir og hurðirnar rispaðar en það sást ekki á myndunum. Við vorum bara að tala um slíka hluti." Ásgeir segir að líklega hefði verið skynsamlegt að vanda orðavalið betur. "Við Arnar erum vinir og töluðum á kumpánlegum nótum. Það átti eftir vill ekki við þarna." Mest sárnar honum að sumir túlka orð þeirra Arnars sem snobb og flottræfilshátt. "Okkur þykir það báðum leiðinlegt því þetta snerist engan veginn um það. Sjálfur skít ég ekki peningum en það hefur lengi verið draumur minn að kaupa íbúð og gera hana upp. Loksins rættist hann."
Menning Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Fleiri fréttir Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins Sjá meira