Eðlisfræðineminn mætir stjórnmálafræðingnum 23. febrúar 2006 11:15
Sævar Helgi Bragason og Kristján Guy Burgess mætast í þriðju viðureign 16 manna úrslita í spurningaþættinum Meistaranum á Stöð 2 í kvöld. Meistarinn hefur fengið geysigóðar viðtökur síðan hann hóf göngu sína um síðustu jól. Það staðfestist í dagbókarkönnun Gallup, sem birt var í síðustu viku, en þar kemur fram að þátturinn er orðinn næstvinsælasti þátturinn á Stöð 2 á eftir Idol-Stjörnuleit með 41% uppsafnað áhorf meðal ákrifenda Stöðvar 2 og 21% meðal allra sjónvarpsáhorfenda á aldrinum 12-80 ára. Keppendur næstu þáttar, þeir Sævar Helgi og Kristján Guy, mæta báðir til leiks í fyrsta sinn, sátu hjá í fyrstu umferð, og munu keppa um að verða sá þriðji til að tryggja sér sæti í 8 manna úrslitum og þar með þokast nær því að verða krýndur Meistarinn og fá að launum 5 milljónir króna í beinhörðum peningum. Sævar Helgi BragasonSævar Helgi er 21 árs gamall nemi við Háskóla Íslands í eðlisfræði og er e.t.v. einhverjum að góðu kunnur fyrir að hafa tekið þátt í Gettu betur fyrir hönd Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Kristján Guy BurgessKristján Guy er 32 ára gamall ráðgjafi, sem hefur MA próf í alþjóðastjórnmálum og þjóðarrétti. Kristján Guy á einnig að baki áralanga reynslu sem blaðamaður og starfaði m.a. sem fréttastjóri hjá DV fyrir nokkrum árum síðan. Nú þegar hafa tveir tryggt sér þátttökurétt í 8 manna úrslitum. Fyrstur var Snorri Sigurðsson líffræðingur 24 ára gamall líffræðiaðjúnkt sem lagði Önnu Pálu Sverrisdóttur í fyrstu viðureign 16 manna úrslita og í síðustu viku tryggði Jónas Örn Helgason sæti í 8 manna úrslitum er hann lagði Hauk Harðarson. Næstu viðureignir eru sem hér segir:Björn Guðbrandur Jónsson - Steinþór H. Arnsteinsson Erlingur Sigurðsson - Ólína Þorvarðardóttir Mörður Árnason - Stefán Halldórsson Illugi Jökulsson - Ágúst Gíslason Inga Þóra Ingvardóttir - Friðbjörn Garðarsson Meistarinn er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudögum kl. 20:05 og endursýndur á laugardögum kl. 16:00 og mánudögum kl. 23:00. Hægt er að nálgast Meistarann og aðra íslenska þætti sem sýndir eru á Stöð 2, Sirkus, Sýn og NFS á Vísir VefTV Einnig skal bent á vefsíðu þáttarins: visir.is/meistarinn Þar er hægt að nálgast allar upplýsingar um keppnina og keppendur, léttir spurningaleikir í boði og síðast en ekki síst þá bloggar Logi Bergmann reglulega um keppnina, spáir í spilin og greinir frá ýmsu kræsilegu sem ekki kemur fram í þáttunum sjálfum.
Meistarinn Mest lesið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Lífið „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Lífið „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Lífið Fleiri fréttir „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Förgun bóka áþekk því að lóga gæludýrum Sjá meira