Iðnaðarráðherra sagður segja ósatt 8. nóvember 2006 18:30
Iðnaðarráðherra var sakaður um að hafa sagt ósatt á Alþingi í síðustu viku þegar hann sagði engar skipulagsbreytingar fram undan hjá Landsvirkjun, en nú hefur verið ákveðið að RARIK og Orkubú Vestfjarða verði dótturfélög Landsvirkjunar. Ráðherrann segir engar breytingar verða gerðar á samþykktum þessara félaga. Jón Gunnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, kvað sér hljóðs um dagskrá þingsins í dag. Hann rifjaði upp að fyrir viku hefði iðnaðarráðherra svarað fyrirspurn frá sér um Landsvirkjun og fullyrt að ekki stæði til að renna RARI og Orkubúi Vestfjaðra inn í Landsvirkjun. Viku seinna tilkynni ráðherrann síðan að þessi fyrirtæki skuli fara undir Landsvirkjun. Jón spurði því nafna sinn Sigurðsson iðnaðarráðherra, hvort þessi ákvörðun hefði verið tekin í flýti, eða hvort ráðherrann hefði sagt ósatt á Alþingi fyrir viku. Jón Sigurðsson að í orðum sínum fyrir viku hefði legið að það væri ekki í ráði í tengslum við þessar eignabreytingar að sameina RARIK, Orkubúið og Landsvirkjun. RARIK og Orkubúið yrðu áfram sérstök félög. Mörður Árnason, þingmaður samfylkingarinnar, sagði að iðnaðarráðherra hefði sagt Alþingi ósatt fyrir viku. Það væri hörmulegt og vont fyrir ráðherrann. En það versta væri ef ráðherrann hefði sagt ósatt um þetta mál, hlytu menn að efast um heilindi hans varðandi önnur atriði. Fyrirspyrjandinn, Jón Gunnarsson, var ekki ánægður með svör ráðherrans og spurði hvort hann gæti ekki svarað einfaldri spurningu með einföldu svari. Eða hvort hvort ráðherrann væri vísvitandi að blekkja Alþingi. Umræðurnar urðu all heitar á köflum og í lokasvari sínu á þinginu í dag sagði iðnaðarráðherra: "Hér hefur orðið nokkur orðbólga. Stór orð hafa verið notuð af vafasömu tilefni." Ráðherrann sagði stór orð verða ódýr þegar þau væru ofnotuð. Þingmenn hefu sett fram bæði oftúlkanir og rangtúlkanir á orðum hans. Með því að gera RARIK og Orkubú Vestfjarða að dótturfélögum Landsvirkjunar væri eingöngu verið að breyta eignafyrirkomulagi Landsvirkjunar, en félögin störfuðu áfram eftir sínum fyrri samþykktum.
Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Lögreglan lýsir eftir Andra Snæ Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Andra Snæ Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Sjá meira