Kosningadúsa 15. apríl 2006 18:45
Dúsa uppí kjósendur, segir oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Mosfellsbæjar um nýsamþykktar tillögur meirihluta Sjálfstæðismanna um afslátt á fasteigna- og leikskólagjöldum og hækkun á niðurgreiðslum til dagforeldra. Sjálfstæðismenn hafi áður hafnað álíka tillögum frá Samfylkingunni.Eins og NFS hefur skýrt frá samþykkti bæjarstjórn Mosfellsbæjar fyrir þremur dögum tillögu meirihluta Sjálfstæðismanna um að veita íbúum 15 prósenta afslátt af fasteignagjöldum, 20 prósenta afslátt af leikskólagjöldum og um 20 prósenta hækkun á framlagi bæjarins til foreldra með börn í daggæslu. Áætlaður kostnaður vegna þessa er samtals 62 milljónir. Oddviti Samfylkingarinnar, Jónas Sigurðsson, segist sjálfur hafa sett fram álíka tillögur í fjárhagáætlun fyrir árið 2006 en þá hafi meirihluti sjálfstæðismanna fellt þá tillögu. Eina sýnilega ástæða sinnaskiptanna nú væru kosningar yfirvofandi.Þá segir Jónas að hin óvænta tillaga Sjálfstæðismanna nú þýði að rekstrarniðurstaða bæjarins verði 50 milljónir í mínus. Einnig bendir hann á að málflutningur bæjarstjóra bendi til að þessar breytingar séu eingöngu hugsaðar fyrir árið 2006 og óvíst hvað við taki í framhaldinu. Framsóknarmenn taka í sama streng. Segja þeir í fréttatilkynningu að með lækkun þessara gjalda sé meirihlutinn að viðurkenna að hann hafi oftekið gjöld á barnafjölskyldur í bænum.Bæjarstjórinn, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, segir hins vegar þetta framlag bæjarins til þess fallið að bæjarbúar fái notið þess stöðugleika sem skapast hafi í rekstri sveitarfélagsins. Hún hafnar því að fjárhagsniðurstaða ársins verði neikvæð fyrir vikið. Samþykktin gildi út árið enda vill núverandi meirihluti ekki binda hendur nýs meirihluta í vor.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Sjá meira