Skáld framtíðarinnar 18. júní 2006 10:00 Árleg ritsmiðja barna. Herdís Egilsdóttir kennari leiðbeinir Fífu Eik 11 ára sem les upp úr sögu sinni Ráðgáta Verunnar, en það er saga um stelpu sem var stolið og er að leita að foreldrum sínum.
Árlegri ritsmiðju barna lauk í gær í Kringlusafni og var mætingin góð að sögn Hildar Baldursdóttur barnabókavarðar Kringlusafnins. "Það mættu 17 börn í gær, ásamt foreldrum og öðrum aðstandendum, sem hlýddu á þau lesa upp úr frumsömdum ljóðum og sögum sem Herdís Egilsdóttir, kennari og rithöfundur, aðstoðaði þau við að setja saman. Á hverju ári fáum við rithöfund til að leiðbeina börnunum og það er gaman að fylgjast með því hversu ólík áhersla þeirra er við tilsögnina." Hildur segir stórkostlegt hafa verið að hlýða á krakkana og bætir við að þarna séu eflaust á ferð framúrskarandi skáld og rithöfundar framtíðarinnar. "Á Íslandi erum við einstaklega heppin þar sem starfandi rithöfundar eru tilbúnir að verja tíma sínum í ritsmiðju með börnunum". Auk ritsmiðjunnar var lestrarmaraþoni Borgarbókasafnsins þjófstartað en það hefst formlega á mánudag. "Það gengur þannig fyrir sig að bæði börn og fullorðnir skrá sig í keppnina um leið og fólk skilar inn bók sem það hefur verið að lesa og fær í leiðinni afhenta þar til gerða þátttökuseðla. Því fleiri seðlum sem það safnar, því meiri möguleikar eru á því að vinna," segir Hildur. Keppnin stendur yfir fram á Menningarnótt en þá verður uppskeruhátíð þar sem heppnir þátttakendur verða dregnir út og veitt verða vegleg verðlaun.
Menning Mest lesið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Sjá meira