Innlent

Staðfesti starfsleyfi Alcans

Álver Alcans í Straumsvík.
Álver Alcans í Straumsvík. Mynd/Vilheml

Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra staðfesti í dag ákvörðun Umhverfisstofnunar um útgáfu starfsleyfis vegna stækkunar Alcans í Straumsvík. Með nýja starfsleyfinu fær fyrirtækið heimild til að framleiða allt að 460 þúsund tonn af áli á ári.

Ráðherra hafnaði kröfu Alcans um að þynningarsvæðið yrði stærra en kveðið var á um í ákvörðun Umhverfisstofnunar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×