Innlent

Varnarliðið segir upp orku- og vatnskaupasamningi

Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli hefur sagt upp orku- og vatnskaupasamningi við Hitaveitu Suðurnesja. Þetta kom fram á aðalfundi Hitaveitunnar sem nú stendur yfir í Svartsengi, að sögn Víkurfrétta. Samningnum var sagt upp með 180 daga fyrirvara.

Í dag eru þessi viðskipti upp á 570 milljónir króna á ári. Haft er eftir Júlíusi Jónssyni, forstjóra Hitaveitunnar, að þetta sé ekki í neinu samræmi við ákvæði gildandi samnings.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×