Ritstjóraskipti á DV 13. janúar 2006 18:49
Jónas Kristjánsson og Mikael Torfason hafa látið af störfum sem ritstjórar DV að eigin ósk. Í yfirlýsingu þeirra segir að nauðsynlegt sé að skapa ró um blaðið og koma á vinnufriði. Páll Baldvin Baldvinsson og Björgvin Guðmundsson eru nýir ritstjórar blaðsins. Björgvin Guðmundsson hefur starfað sem fréttamaður á Morgunblaðinu og Fréttablaðinu. Páll Baldvin Baldvinsson hefur verið menningarritstjóri DV. Engar breytingar eru fyrirhugaðar á ritstjórninni enn sem komið er og ekki er hægt að greina frá breyttum áherslum nýrra manna að svo stöddu að sögn Páls Baldvins eða stefnu þeirra í nafn og myndbirtingum af fólki. Það muni hinsvegar koma í ljós fljótlega. "Þetta er spennandi verkefni," segir Páll Baldvin og rifjar upp að blaðið hafi alltaf verið umdeilt í 95 ára sögu sinni og forvera sinna. "Það hefur sjaldnast verið kyrrð í kringum þetta blað." Páll Baldvin segir að mjög eðlilegt þegar mannaskipti verða að menn líti yfir farinn veg, skoði hvað hafi farið miður og hvar megi gera betur. Rúmlega 32 þúsund undirskriftir söfnuðust á netinu á tveimur sólarhringum þar sem ritstjórnarstefnu blaðsins var mótmælt. Páll Baldvin segir að ástandið á blaðinu hafi verið erfitt undanfarna daga og mikið álag á starfsfólki. Undir það tekur Bergljót Davíðsdóttir blaðamaður. "Ég held ég tali fyrir munn allra á ritstjórninni þegar ég segi að okkur hefur liðið ákaflega illa."
Fréttir Innlent Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Erlent Fleiri fréttir Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Sjá meira