Róluvöllurinn innblásturinn 15. júní 2006 14:00 Róluvöllur innblástur Verkið Sumartónar eftir Þorkel Sigurbjörnsson var samið að beiðni Vladimirs Ashkenazy en það er sennilega hið eina sinnar tegundar enda fjallar það um róluvöll.
Nýtt tónverk eftir Þorkel Sigurbjörnsson sem hlotið hefur nafnið Sumartónar er runnið undan rifjum æskuminninga tónskáldsins. Verkið verður frumflutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands á síðustu tónleikum sveitarinnar í sumar. Verkið var samið að beiðni hljóðfæraleikarans og hljómsveitarstjórans, Vladimirs Ashkenazy en hann mun koma fram að minnsta kosti einu sinni ári til að stjórna hljómsveitinni. Þorkell sótti innblástur í verkið af æskudögum sínum á róluvellinum við Freyjugötu en þaðan segist hann eiga góðar minningar. "Þarna voru alltaf mikið af leiktækjum, rólum, söltum og sandkössum, rennibrautum, klifurgrind og annað sem var síðan ekki nothæft á veturna. Þarna lékum við krakkarnir okkur líka án leiktækja í fallinni spýtu, eitt stikk og sto, auraharki, fram fram fylking eða bófahasar og svo framvegis. Í leikjum sem engin kann lengur," segir Þorkell. "Við vorum yfirleitt góðir krakkar. Það var lítið um hrekkjusvín í þeim hópi sem ég tilheyrði sem krakki, sem betur fer. Stundum kom Siggi gamli og spilaði fyrir okkur á munnhörpu, og hoppaði eitthvað, sem hann kallaði karíóka. Leiðinlegust var löggan í hverfinu sem vildi koma okkur krökkunum í hús samkvæmt einhverju klukkuslagi seint á kvöldin. Svo var hægt að læðast út fyrir borgarmörkin, yfir Hringbraut og í Tívolí í Vatnsmýrinni. Þaðan komu líka alls konar sumartónar, ef heppnin var með". Til fulltingis við Sinfóníuhljómsveit Íslands mun leiðandi sellóleikari Sinfóníuhljómsveitarinnar, Bryndís Halla Gylfadóttir, leika sellókonsert eftir Edward Elgar. Bryndís hefur verið virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár, jafnt sem einleikari og í kammertónlist. Auk þess að leika á tónleikum hér á landi reglulega spilar Bryndís oft á tónleikum bæði í Evrópu og í Asíu. Um sellókonsertverkið segir Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur í efnisskrá, "sellókonsertinn er magnþrungin tónsmíð, full af ástríðu og trega, eins og Elgar líti um öxl og minnist þess sem áður var. Hann hefst á tignarlegu eintali ástríðu og trega, sem minnir helst á dramatískt resítaív án orða og snýr aftur á lykilstöðum í verkinu". Tónleikarnir fara fram í Háskólabíói fimmtudaginn 15. júní og hefjast klukkan 19:30.
Menning Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Sjá meira