Lífið

Tilraunakennd tíska frá Brasilíu

Litagleði Töffaralegur kjóll með breiðum svörtum og hvítum röndum. Plastarmböndin notuð til að poppa heildarútlið upp.
Litagleði Töffaralegur kjóll með breiðum svörtum og hvítum röndum. Plastarmböndin notuð til að poppa heildarútlið upp.

Tískuvika var haldin í Río de Janerio höfuðborg Brasilíu í byrjun júní. Þar sýndu margir af fremstu hönnuðum landsins í nýlistasafni borgarinnar.

Margir halda að Brasílía sé eingungis í því að hanna og framleiða sundfatnað en meira er í þá spunnið og þess má geta að Francisco Costa aðalhönnuður Calvin Klein er brasilískur að uppruna og þjóðarstolt þeirra.

Tískuviðburðurinn er haldinn árlega og hefur brasilíumönnum tekist að stimpla sig ærlega inn í tískuheiminn með flottum sýningum og eru ætíð fyrstir í röðinni til að halda sýningar.

Þessar myndir eru frá brasílíka merkinu TNG sem er ungt og frambærilegt merki. Sýningin var fyrir vor/sumar "07. Tilraunakennd snið og skemmtilegar litasamsetnig. Látum myndirnar tala sínu máli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.