Lífið

Tarantino í miklu uppáhaldi

Eftirlætis kvikmynd:

Ég á mjög erfitt með að gera uppháldskvikmynd eða topp fimm lista. Pulp Fiction er hins vegar sú mynd sem kemur oftast uppí hugann á mér en ég fór á sérstaka forsýningu áður en hún hafði slegið í gegn á sínum tíma.

Þetta var mögnuð upplifun og ég leyfi mér að efast um að Tarantino eigi eftir að gera jafn góða mynd. Swingers með Vince Vaughn og Raising Arizona eftir Coen - bræður eru líka í miklu uppáhaldi.

Eftirminnilegasta atriðið: Þegar John Travolta stingur adrenalín - sprautinni í brjóstið á Umu Thurman í Pulp Fiction. Magnað atriði sem situr lengi í manni.   Eftirlætis leikstjóri Quentin Tarantino er í miklu uppáhaldi auk Spike Jonze og Alexander Payne






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.