Millilandaflug lamast ekki þrátt fyrir skort á flugumferðarstjórum 18. desember 2006 18:30
Forstjóri Flugstoða segir að millilandaflug muni ekki lamast þótt um sextíu flugumferðarstjórar hafi ekki nýtt lokafrest til að ráða sig hjá fyrirtækinu, sem tekur til starfa um áramótin. Til greina kemur að ráða flugumferðarstjóra erlendis frá ef á þarf að halda. Enginn þeirra tæplega sextíu flugumferðarstjóra sem ekki hefur gert samning við Flugstoðir ohf. um störf hjá fyrirtækinu eftir að það tekur við flugstjórn á Íslandi um áramót, sótti um starf þegar ítrekað framlengdur frestur til þess rann út klukkan tvö í dag. Félag íslenskra flugumferðarstjóra þrýstir á að gerður verði nýr kjarasamningur milli félagins og Flugstoða. Þá vilja þeir að lífeyrisréttindi flugumferðarstjóra verði þau sömu og þau eru nú hjá ríkinu. Forráðmenn Flugstoða telja kjarasamning vera í gildi og vilja ekki taka þá upp, en segjast hafa gefið út þá yfirklýsingu að lífeyrisréttindin verði tryggð. Þorgeir Pálsson, forstjóri Flugstoða, segir stjórn félagsins ítrekað hafa lýst því yfir skriflega að lífeyrisréttindi starfsmanna verði tryggð. Það hafi einnig verið boðið upp á að gera samkomulag við flugumferðarstjóra um hvernig þetta loforð yrði framkvæmt. Þannig að lífeyrissjóðsmálið væri ekki alvöru deilumál. Loftur Jóhannsson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra, segir að yfirlýsingar dugi ekki. Ef það væri nóg að atvinnurekendur gæfu út yfirlýsingar um kjör fólks, þá þyrfti hvorki samninga né stéttarfélög. En það væri auðvitað ekki raunin. Á bilinu þrjú til fimm þúsund manns fljúga daglega til og frá landinu og þessi deila setur ferðalög þessa fólks í óvissu strax um áramótin. En flugturninn á Keflavíkurflugvelli verður fullmannaður. Loftur segir að það eigi eftir að vera erfitt að halda uppi eðlilegri flugumferð þegar vanti um 60 flugumferðarstjóra. Gripið verður til viðbragðsáætlunar hjá Flugstoðum, að sögn Þorgeirs. Það þýði að þjónustustigið verði með öðrum hætti en venjulega, en landið lokist ekki og flugsamgöngum verði haldið uppi. Hann vill ekki útiloka að útlendingar verði ráðnir til starfa í flugstjórnarmiðstöðinni, fáist Íslendingar ekki til þess. En það tekur allt frá nokkrum vikum upp í nokkra mánuði að þjálfa menn til starfa hér, allt eftir því hvaða reynslu þeir hafa af stjórnun úthafsflugs.
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Fleiri fréttir Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Sjá meira