Mengunarkvótinn uppurinn 24. janúar 2006 20:07
Stækkun álversins í Straumsvík klárar það sem eftir er af mengunarkvóta Íslands, samkvæmt Kyoto-samningnum. Til að byggja fleiri álver þarf Ísland því annaðhvort að biðja um frekari undanþágur við endurskoðun samningsins eða kaupa mengunarkvóta frá öðrum ríkjum. Alþjóðlegar skuldbindingar, sem Ísland hefur gengist undir, takmarka það hversu mörg álver megi reisa í landinu. Íslendingum tókst í Kyoto-samningunum um loftlagsmengun að fá inn séríslenskt ákvæði sem gefur þeim rýmri heimildir til mengunar umfram aðrar þjóðir. Samkvæmt því má árlegt útstreymi koltvísýrings frá nýrri stóriðju, sem hefur starfsemi eftir árið 1990, aukast um allt að 1.600 þús. tonn. Straumsvík tók fyrsta skammtinn af mengunarkvóta Íslands, 220 þúsund tonn, með stækkun álversins árið 1997 og síðan bættist Norðurál við, og tók einnig 220 þúsund tonn, samkvæmt tölum frá iðnaðarráðuneytinu. Fjarðarál, sem verið er að reisa á Austurlandi, mun taka 486 þúsund tonn, og stækkun Norðuráls, sem stendur yfir, mun taka 257 þúsund tonn. Þá er eftir óráðstafað 417 þúsund tonn af koltvísýringi fyrir álver til að láta út í andrúmsloftið á Íslandi. Iðnaðarráðuneytið áætlar að það samsvari 276 þúsund tonna álframleiðslu á ári. Það er nánast sama magn og áformað er að framleiða í viðbótinni í Straumsvík. Með henni mun því mengunarkvóti Íslands klárast. Valdið til að úthluta kvótanum er í höndum iðnaðarráðherra, samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar, en engar reglur hafa hins vegar verið settar um hvernig fara skuli að við úthlutun, ef margir sækja um. Skuldbindingar Kyoto-samningsins gilda hins vegar aðeins til ársins 2012 og forsætisráðherra lýsti því yfir í þingumræðu í fyrravetur að Ísland myndi við endurskoðun samningsins sækjast eftir frekari undanþágum. Ef þær fást ekki hafa stjórnvöld einnig þann möguleika að kaupa mengunarkvóta frá öðrum ríkjum.
Fréttir Innlent Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Sjá meira