Afskipti Alþingis orsaka stjórnskipulegan vanda 31. janúar 2006 13:56 Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Halldór Halldórsson, dómstjóri Héraðsdóms Norðurlands vestra, segir það ekki gott að Alþingi grípi fram fyrir hendur Kjaradóms eins og gert var varðandi úrskurð Kjaradóms um laun æðstu embættismanna. Dómarar íhuga nú lögsókn vegna málsins. Halldór Halldórsson er einn þeirra dómara sem ekki er sáttur við afskipti framkvæmda- og löggjafarvaldsins af ákvörðun Kjaradóms. Hann minnir á að alþingismenn hafi sjálfir ekki viljað ákvarða eigin laun og því komið þeirri ákvörðun með lagasetningu til Kjaradóms. Það sé því óheppilegt að þeir afnemi ákvörðun Kjaradóms með lögum, burtséð frá því hver hún var. Halldór segir vandséð hvernig leysa eigi þann stjórnskipulega vanda sem nú er kominn upp. Hins vegar verði að finna leið út úr þessum ógöngum. Allir þeir sem lögin á Kjaradóm ná yfir geti farið í mál. Halldór segir heppilegast að laun dómara verði ákveðin með svipuðum hætti og lögin um Kjaradóm gerðu ráð fyrir. Best væri að dómarar væru ekki flokkaðir með mörgum öðrum hópum. Til dæmis fari ekki vel saman að þeir séu í hóp með þingmönnum og ráðherrum líkt og þeir eru nú. Óvíst er hvort dómarar hafi biðlund til að bíða eftir niðurstöðu þeirrar nefndar sem ríkisstjórnin hefur skipað til að fara yfir lög um Kjaradóm og kjaranefnd. Þannig hefur Guðjón St. Marteinsson, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, ákveðið að höfða mál á hendur ríkinu vegna afnáms úrskurðar Kjaradóms geri Dómarafélag Íslands það ekki, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag. Þar kemur einnig fram að fleiri dómarar séu sama sinnis og Guðjón. Í ályktun félagsfundar Dómarafélags Íslands frá 26. janúar kemur hins vegar fram að félagið hafi frestað ákvörðun um málshöfðun á hendur ríkinu þrátt fyrir að fundurinn véfengi að lög um afnám ákvörðunar Kjaradóms samrýmist stjórnarskránni.
Fréttir Innlent Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira