Ísland ekki skotmark hryðjuverkamanna 31. janúar 2006 12:12 MYND/Teitur Jónasson
Ísland skiptir ekki lengur nokkru máli í hernaðarlegu tilliti og engin sannfærandi rök hafa verið færð fyrir því að Ísland sé mögulegt skotmark hryðjuverkamanna. Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein eftir Val Ingimundarson sagnfræðing, sem birtist á dögunum í virtu erlendu fræðiriti um öryggis- og varnarmál. Grein Vals birtist í nýútkomnu tölublaði fræðirits sem gefið er út af Royal United Services Institute í Lundúnum. Sú stofnun sinnir rannsóknum í öryggis- og varnarmálum. Í titli greinarinnar er spurt hvort endalok svokallaðs öryggis samfélags Bandaríkjanna og Íslands sé á næsta leiti. Það sé köld staðreynd að engin sannfærandi rök hafi verið borin á borð fyrir því að Ísland sé mögulegt skotmark hryðjuverkamanna. Raunveruleikinn hvað varðar hernaðarlegt mikilvægi Íslands sé allt annar en á tímum Kalda stríðsins. Valur segir þessa stöðu ekki aðeins hafa valdið miklu álagi í samskiptum Bandaríkjanna og Íslands og stefnt varnarsamningi ríkjanna frá árinu 1951 í hættu. Þær ríkisstjórnir sem hafi verið við völd síðustu árin hafi verið nauðbeygðar til að gera sér grein fyrir því að ekki sé nægilegt að styðja utanríkismálastefnu Bandaríkjanna skilyrðislaust til þess að tryggja lágmarksvarnir. Ágreiningur vegna áætlana Bandaríkjanna um að draga úr varnarviðbúnaði á Íslandi hafi stigmagnast árið 2003. Samskiptin hafi síðan þá verið á persónulegum nótum milli Bandaríkjastjórnar og Davíðs Oddssonar, fyrrverandi utanríkis- og síðan forsætisráðherra. Valur hefur eftir ónanfgreindum embættismann í Þjóðaröryggisráði Bandaríkjamanna að með brotthvarf Davíðs úr stjórnmálum megi gera ráð fyrir að bandarísk stjórnvöld séu síður tilbúin að miðla málum um framtíð varnarstöðvarinnar í Keflavík.
Fréttir Innlent Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Fleiri fréttir Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin Sjá meira