Miklar tafir á umferð í morgun 17. janúar 2006 13:00 MYND/GVA
Þúsundir manna komu of seint til vinnu sinnar á höfuðborgarsvæðinu í morgun vegna mikillar ófærðar. Miklar tafir voru í umferðinni og langar raðir bíla voru á öllum helstu stofnbrautum höfuðborgarsvæðisins. Engin óhöpp urðu þó í Reykjavík og aðeins þrír minniháttar árekstrar urðu í Hafnarfirði en ekki er hægt að rekja umferðartafirnar til þeirra. Dæmi eru um að fólk hafi verið allt að eina og hálfa klukkustundu á leiðinni frá Hafnarfirði til Reykjavíkur. Miklum snjó hefur kyngt niður á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga, eftir fremur snjóléttan vetur. Ökumenn virðast ekki alveg hafa verið undir ófærðina búnir og á háannatímanum milli klukkan átta og níu fylltust allar stofnæðar á misvel búnum bílum. Á mótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar mátti sjá bílalestina ná frá Háaleitisbraut að Hringbraut. Umferðin gekk hægt enda þungfært og mikill snjór á götunum. Flestir voru þó rólegir og fóru varlega. Margir voru að verða of seinir til vinnu eða annarra athafna. Margir festu bíla sína og almennt ók fólk hægt vegna hálku. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill minna fólk á að nú sé janúar en ekki júlí og gera megi ráð fyrir mikilli umferð á há annatímum. Fólk ætti því að leggja fyrr af stað en ella á morgnana ef það vill koma á réttum tíma á áfangastað. Veður verður óbreytt á höfuðborgarsvæðinu í dag. En í fyrramálið má búast við snjókomu eða slyddu og síðan rigningu eftir hádegi. Færð getur því verið erfið í fyrramálið.
Fréttir Innlent Mest lesið Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að vitnisburði sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Sjá meira