Markaðurinn á fleygiferð 5. apríl 2006 17:00
Úrvalsvísitalan hækkaði um tæp tvö prósent í dag eftir miklar lækkanir að undanförnu. Mest hækkuðu bréf Flögu eða um 24 prósent og er óhætt að segja að hlutabréfamarkaðurinn hafi verið á fleygiferð að undanförnu, aðallega þó niður á við eftir neikvæða umræðu erlendra banka um íslenskt efnahagslíf. Í gær sendi matsfyrirtækið Moody's síðan frá sér tvær skýrslur þar sem lánshæfismat ríkisins annars vegar, og stóru bankanna þriggja hins vegar, er staðfest. Segja þeir áhyggjur af greiðsluhæfi og lausafjáráhættu ríkissjóðs meiri en efni standi til. Landið sé auðugt og uppbygging hagkerfisins verði stöðugt fjölbreyttari. Sterk staða ríkisins auðveldi því að styðja við fjármálageirann, skyldi hann verða fyrir áföllum. Markaðurinn brást vel við skýrslum Moodys í morgun og hækkaði úrvalsvísitalan um tæp tvö prósent. Mest hækkuðu bréf Flögu eða um 24 prósent eftir að hafa fallið um 20 prósent deginum áður. Sérfræðingar á markaðinum eru sammála um að mestu lækkanir séu líkleg að baki og við taki nú stöðugra tímabil. Kauptækifæri hafi vissulega skapast en markaðurinn sé þó mjög viðkvæmur fyrir öllum fréttum. Nú sé unnið hörðum höndum við að upplýsa sérfræðinga og fjölmiðla erlendis um íslenskt efnahagslíf sem Íslendingar hafa vissulega verið sakaðir um að hafa ekki staðið sig vel í. Sérfræðingar hérlendis eru einnig sammála um að íslenski markaðurinn sé ekki óþroskaður og á mörgum sviðum sé hann til að mynda kominn lengra en aðrir. Og þrátt fyrir að erlendir sérfærðingar hafi talað á neikvæðum nótum og af vanþekkingu, er áhugi útlendinga á íslenskum markaði enn til staðar.
Fréttir Innlent Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Sjá meira