Litlu munaði að eldsprenging yrði á Laugavegi í gær 14. nóvember 2006 12:45
Aðeins munaði örfáum mínútum að eldur, sem kviknaði í risíbúð við Laugaveg í Reykjavík í gærkvöldi, ylli eldsprengingu og miklu eldhafi, sem hefði ógnað nærliggjandi húsum. Slökkviliðsmenn telja að hitinn í íbúðinni í gærkvöldi hafi verið orðinn 500 til 600 gráður. Guðmundur Halldórsson varðstjóri, sem stjórnaði slökkvistarfinu segir að ekki hafi mátt tæpara standa því yfirtendrun hafi orðið í eldhúsinu, þar sem eldurinn logaði, en hún verður ekki nema við nokkur hundruð gráða hita. Við þær aðstæður brenna allar gufur sem leggur fá innanstokksmunum, jafn óðum og að sjálfsögðu allt súrefni í rýminu. Fjórum reykköfurum tókst að skríða inn í eldhúsið og slá á eld og hita og gekk slökkvistarf vel úr því. Enginn var í íbúðinni þegar eldurinn kom upp og aðrir íbúar hússins forðuðu sér út. Múrhúð í eldhúsinu kom í veg fyrir að eldurinn næði upp í þakið, en þá hefði eldurinn náð mikilli útbreiðslu á svipstundu og nálægum húsum stafað hætta af neistaflugi, því hvasst var í veðri. Allt innanstokks í íbúðinni er ónýtt og einhverjar skemmdir urðu í annari íbúð í húsinu, en eldsupptök eru ókunn.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Fleiri fréttir Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Sjá meira